Fréttir | 24. mars 2021 - kl. 11:54
Húnaþing vestra ætlar að funda með Dalabyggð

Byggðarráð Húnaþings vestra hefur þegið boð Dalabyggðar um sameiginlegan fund sveitarstjórna Húnaþings vestra og Dalabyggðar til að ræða afstöðu þeirra til þess hvort hafnar verði formlegar eða óformlegar sameiningarviðræður. Verkefnishópur um könnun á valkostum Dalabyggðar til sameiningar við önnur sveitarfélög lagði til nýverið við sveitarstjórn Dalabyggðar að annars vegar sveitarstjórn Húnaþings vestra og hins vegar sveitarstjórnum Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar yrði boðið til fundar til að ræða hvort hefja skuli viðræður um mögulega sameiningu við Dalabyggð.

Í framhaldinu sendi Dalabyggð erindi til Húnaþings vestra með boð um fund til að ræða mögulegar viðræður um sameiningu. Leiði sá fundur í ljós að vilji sé til sameiningarviðræðna verður tekin afstaða til þess hvort hafnar verði formlegar eða óformlegar sameiningarviðræður. Þá verður ákveðinn tímarammi fyrir þær viðræður og óskað eftir framlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að styðja við verkefnið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga