Mynd: rarik.is
Mynd: rarik.is
Fréttir | 27. mars 2021 - kl. 10:00
Vilja RARIK á Norðurland vestra

Atvinnuveganefnd Alþingis hefur til umfjöllunar þingsályktunartillögu Höllu Signýjar Kristjánsdóttur og tveggja annarra þingmanna Framsóknarflokksins um að stefna skuli að flutningi höfuðstöðva RARIK á landsbyggðina og kannað verði á grundvelli hagsmuna félagsins hvar hentugast væri að byggja upp höfuðstöðvar og efla starfsstöðvar um landið. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hefur sent inn umsögn um þingsályktunartillöguna og tekur hún undir sjónarmið hennar.

„Flutningur höfuðstöðva félagsins myndu samræmast áherslum byggðaáætlunar sem og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar auk stefna einstakra stjórnmálaflokka. Yrði flutningurinn vel til þess fallinn að fjölga störfum og bæta þannig búsetuskilyrði á landsbyggðinni. Það skýtur skökku við að þrátt fyrir að meginstarfsemi Rariks ohf. sé á landsbyggðinni séu höfuðstöðvarnar í Reykjavík. Eins og fram kemur í þingsályktunartillögunni endurspeglar núverandi staðsetning höfuðstöðvanna starfsemi félagsins ekki eins vel og hægt væri. Stjórn SSNV tekur því heilshugar undir efni þingsályktunartillögunar,“ segir í umsögninni

Norðurland vestra ákjósanlegur staður
Stjórn SSNV vekur auk þess athygli á Norðurlandi vestra sem ákjósanlegri staðsetningu fyrir höfuðstöðvar RARIK. Í landshlutanum sé saga félagsins rík með rekstri virkjana og hitaveitna auk dreifikerfisins. „Staðsetningin höfuðstöðva Rariks ohf. á Norðurlandi vestra yrði mikil lyftistöng fyrir atvinnulíf svæðisins en þegar eru starfsstöðvar félagsins á Sauðárkróki, Blönduósi og þar til nýverið á Hvammstanga. Á meðan starfsfólki í félagsins í höfuðstöðvum í Reykjavík hefur fjölgað hefur þeim sem starfsmönnum sem staðsettir eru á Norðurlandi vestra fækkað jafnt og þétt. Gott lag er því til að efla þessar starfsstöðvar félagsins með flutningi höfuðstöðvanna í landshlutann og styrkja þannig stoðir atvinnulífs svæðisins.“

Flutningur höfuðstöðva RARIK á Sauðárkrók og efling starfsstöðva á Blönduósi og Hvammstanga var ein tillagna Norðvesturnefndarinnar í skýrslu frá árinu 2014 en tilgangur nefndarinnar var að setja fram tillögur að aðgerðum sem miðuðu að því að efla byggðaþróun, fjölga atvinnutækifærum og efla fjárfestingu á Norðurlandi vestra. Hugmyndin um að flytja höfuðstöðvar RARIK á Norðurland vestra er því ekki ný af nálinni.

Sjá umsögn stjórnar SSNV.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga