Bólusetning. Mynd: stjornarradid.is
Bólusetning. Mynd: stjornarradid.is
Fréttir | 27. mars 2021 - kl. 10:19
Bólusetning gengur vel á Norðurlandi

Í næstu viku fær Heilbrigðisstofnun Norðurlands senda 480 skammta af Pfizer bóluefninu sem verður nýtt til að bólusetja seinni bólusetningu hjá þeim sem fengu bóluefni 2. og 9. mars. Þá verður starfsfólk sem eftir eru inn á hjúkrunar- og dvalardeildum og annað heilbrigðisstarfstarfsfólk sem er inn á heilbrigðistofnunum bólusett. Einnig er gert ráð fyrir að byrja með bólusetningar á slökkviliðsmönnum og að þær klárist í vikunni eftir páska.

HSN mun jafnframt fá um 1100 skammta af Astra Zeneca bóluefninu í næstu viku sem verður nýtt til að bólusetja eldri íbúa og er gert ráð við ráð fyrir að ná að bólusetja niður í árgang 1948 og jafnvel byrja á árgangi 1949. HSN vekur athygli á því að sóttvarnarlæknir hefur ákveðið að Astra Zeneca bóluefnið skuli fara í eldri aldurshópana.

HSN biður fólk vinsamlegast að hringja ekki inn á heilsugæslustöðvar HSN vegna fyrirspurna um bóluefni. „Treysta verður því sem sóttvarnarlæknir boðar og bendum við á upplýsingar sem finna má á síðum Embætti landlæknis og lyfjastofnunar. Ef fólk ákveður að þiggja ekki ákveðið bóluefni þá fer það aftast í röðina,“ segir á vef HSN.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga