Fréttir | 27. mars 2021 - kl. 12:49
Sveitarstjórnir samstíga um kosningu 5. júní

Sveitarstjórnir Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar hafa samþykkt að atkvæðagreiðsla um sameiningu sveitarfélaganna fari fram 5. júní næstkomandi og falið samstarfsnefnd að undirbúa atkvæðagreiðslu, og kynna tillögu um sameiningu og helstu forsendur fyrir íbúum.

Sveitarstjórnirnar hafa jafnframt lýst því yfir að þær muni ekki nýta heimild í sveitarstjórnarlögum komi til þess að sameiningartillaga verði samþykkt af íbúum í hluta sveitarfélaganna, nema að undangengnu samráði við íbúa. Það felur í sér að ef íbúar í einu sveitarfélagi fella tillöguna munu aðrar sveitarstjórnir eiga aftur samráð við íbúa áður en tekin verður ákvörðun um hvort þau þrjú sveitarfélög sameinist.

Þá telja sveitarstjórnirnar brýnt að fylgt verði áherslum sem fram hafa komið á fundum samstarfsnefndar með þingmönnum og ráðherrum varðandi brýn verkefni í atvinnu- og byggðamálum í Austur-Húnavatnssýslu. Meðal áherslna er stuðningi við stofnun umhverfisakademíu, uppbyggingu ferðamannastaða, og fjölgun starfa við innheimtuþjónustu sýslumanns á Blönduósi og Vinnumálastofnunar á Skagaströnd. Sveitarstjórnirnar telja einnig mikilvægt að átak verði gert í viðhaldi héraðs- og tengivega með það fyrir augum að tryggja greiðar samgöngur innan nýs sveitarfélags.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga