Fréttir | 27. mars 2021 - kl. 13:30
Skagaströnd tekur við fasteignum FISK-Seafood

Sveitarfélagið Skagaströnd hefur tekið við fasteignum FISK-Seafood ehf. en samningur þess efnis var undirritaður 17. mars síðastliðinn. Fasteignirnar sem afsalaðar voru til sveitarfélagsins eru að Túnbraut 1-3, Oddagötu 12 og Hafnarlóð 9. Um er að ræða iðnaðarhúsnæði sem hýsti áður gömlu rækjuvinnsluna, síldarverksmiðjuna á hafnarsvæði ásamt skrifstofuhúsnæði sem hýsir Greiðslustofu Vinnumálastofnunar og skrifstofu sveitarfélagsins. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar.

Þar segir að með breytingu á eignarhaldi skapist ýmis sóknarfæri fyrir sveitarfélagið til þess að stuðla að uppbyggingu og styrkingu innviða ásamt því að hlúa að þeirri mikilvægu starfsemi sem nú þegar er starfrækt á Skagaströnd.

Fyrsta verkefnið sem er á teikniborðinu hjá sveitarfélaginu er að búa 26 starfsmönnum Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd betri aðbúnað á Túnbrautinni. „Mikilvægi þeirrar starfsemi hefur heldur betur sýnt sig á Covid tímum, en starfsfólk býr yfir gríðarlega mikilvægri þekkingu og reynslu.“

Í því augnamiði að bæta aðstöðu Greiðslustofu á Skagaströnd til frambúðar hefur á síðustu mánuðum verið unnið að tillögum að breytingu á húsnæðinu og er það m.a. gert til þess að mæta þörfum vaxandi vinnustaðar þar sem sífellt bætist við starfafjöldann á Greiðslustofu.

Þá munu breytingar á húsnæðinu einnig taka mið af því að skapa aðstöðu fyrir störf án staðsetningar og aðra opinbera starfsemi skapist tækifæri til slíkrar uppbyggingar og ekki síður búa starfsmönnum á skrifstofu sveitarfélagsins sem einnig er staðsett í húsinu betri aðstöðu.

Unnið er að því að finna rækjuvinnslunni og síldarverksmiðjunni hlutverk. FISK-Seafood er með tímabundinn leigusamning á gömlu síldarverksmiðjunni fram í maí 2024 en fram að þeim tíma verður unnið að því að finna húsnæðinu framtíðarverkefni, að því er segir á vef Skagastrandar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga