Skjáskot af ruv.is
Skjáskot af ruv.is
Fréttir | 27. mars 2021 - kl. 15:18
Kraftur í húsbyggingum á Blönduósi vekur athygli

Í Tíufréttum Sjónvarps á þriðjudaginn var fjallað um framkvæmdir á Blönduósi og sagt frá því að meira hafi verið byggt á Blönduósi síðustu mánuði en mörg undanfarin ár. Rætt var við Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóra Blönduósbæjar, sem sagði að enn vantaði meiri innspýtingu í landshlutann sem setið hefði eftir í byggðaaðgerðum stjórnvalda.

Fram kom að árið 2018 hafi bygging íbúðarhúsa á Blönduósi hafist á ný eftir nærri tíu ára hlé. Á síðustu mánuðum hefði aukinn kraftur færst í húsbyggingar, bæði á vegum verktaka og sveitarfélagsins. Í nýju íbúðahverfi á Blönduósi eru risin tvö fimm íbúða raðhús og annað þeirra þegar komið í notkun. Þá er fólk nýflutt inn í einbýlishús og parhús í sama hverfi. Annars staðar í bænum hefur íbúðafélagið Bæjartún svo sótt um lóð fyrir fjölbýlishús. „Og þá er verið að horfa frá tólf og allt upp í sextán, átján íbúðir á einhverjum árum,“ sagði Valdimar.

Hann sagði jafnframt hluti þessara framkvæmda væri að frumkvæði verktaka en þó með ákveðinni fyrirgreiðslu frá Blönduósbæ. „Við ákváðum, til þess að þétta byggð hérna í einu hverfi, að fella niður gatnagerðargjöld eins og stundum er gert. Og það var ákveðinn hvati. Þá vorum við með leigutryggingu ef íbúðir myndu ekki seljast, en það hefur ekki reynt á það.“

Valdimar sagði einnig að ekki væri útlit fyrir annað en þessi uppbygging héldi áfram, í hægum skrefum þó. Þessi hluti landsins hefði setið eftir við aðgerðir í byggðamálum síðustu ár og áratugi. „Hér er þörf fyrir meiri innspýtingu í nýsköpun í atvinnuvegum og öðru slíku. Þannig að við köllum eftir aðstoð ríkisins við það líka, varðandi störf án staðsetningar og stofnanir sem hér geta verið og eru í miklum blóma,“ sagði Valdimar í Tíufréttum Sjónvarps þriðjudagskvöldið 23. mars.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga