Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:22 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:22 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:22 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:22 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:22 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:22 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Bóluefnadagatal heilbrigðisráðuneytisins og sóttvarnalæknis hefur verið uppfært í samræmi við nýjustu upplýsingar um afhendingu bóluefna gegn COVID-19. Gert er ráð fyrir að á öðrum ársfjórðungi, þ.e. í apríl, maí og júní berist bóluefni fyrir samtals rúmlega 193.000 einstaklinga. Gangi það eftir hefur Ísland þá fengið bóluefni fyrir samtals 240.000 einstaklinga frá því að bólusetningar hófust í lok desember.
Til samanburðar var gert ráð fyrir bóluefni fyrir samtals 217.000 einstaklinga við síðustu uppfærslu dagatalsins þann 12. mars síðastliðinn. Þetta eru um 86% þeirra sem ráðgert er að bólusetja en alls telur sá hópur um 280.000 manns. Ekki er gert ráð fyrir að börn fædd 2006 og síðar verði bólusett, né þeir sem fengið hafa Covid-19.
Fjögur bóluefni eru með markaðsleyfi og þrjú þeirra eru nú þegar í notkun hér á landi. Þetta eru bóluefni Pfizer, AstraZeneca, Moderna og Janssen. Fyrir liggur staðfest áætlun um afhendingu þessara lyfja til loka apríl. Gert er ráð fyrir að bóluefni CureVac hljóti markaðsleyfi í byrjun maí en framleiðandi þess miðar nú við að hefja afhendingu í lok annars ársfjórðungs sem er nokkru seinna en áður var áætlað.
Á föstudaginn hófst á ný bólusetning með bóluefni frá AstraZeneca og er nú verið að bjóða eldri aldurshópnum í bólusetningu. Gert er ráð fyrir að í vikunni eftir páska hafi öllum 70 ára og eldri verið boðin bólusetning.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |