Mynd: hunvetningur.is
Mynd: hunvetningur.is
Fréttir | 30. mars 2021 - kl. 11:40
Fundað með þingflokkum í apríl

Oddvitar sveitarstjórna í Austur-Húnavatnssýslu munu eiga fjarfundi með þingflokkum á Alþingi í apríl. Markmið fundanna er tvíþætt, að því er segir á vefnum Húnvetningur: Annars vegar að kynna verkefnið Húnvetningur fyrir þingmönnum og svara spurningum þeirra, en það fjallar um sameiningu sveitarfélaganna fjögurra. Meginmarkmiðið er hins vegar að kynna áherslur og helstu hagsmunamál Húnvetninga.

„Húnvetningar leggja áherslu á að þingmenn styðji við brýn verkefni í atvinnu- og byggðamálum í Austur-Húnavatnssýslu. Svo sem stofnun Umhverfisakademíu, uppbyggingu ferðamannastaða, og fjölgun starfa við innheimtuþjónustu sýslumanns á Blönduósi og Vinnumálastofnunar á Skagaströnd.

Þá er brýnt að átak verði gert í viðhaldi héraðs- og tengivega með það fyrir augum að tryggja greiðar samgöngur innan nýs sveitarfélags, verði sameiningartillagan samþykkt.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga