Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 10:04 0 0°C
Laxárdalsh. 10:04 0 0°C
Vatnsskarð 10:04 0 0°C
Þverárfjall 10:04 0 0°C
Kjalarnes 10:04 0 0°C
Hafnarfjall 10:04 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Aðalleikararnir og handritshöfundarnir í hlutverkum sínum. Ljósm: Rakel Hinriksdóttir/N4
Aðalleikararnir og handritshöfundarnir í hlutverkum sínum. Ljósm: Rakel Hinriksdóttir/N4
Fréttir | 31. mars 2021 - kl. 10:31
Fyrsta sjónvarpsþáttasería fyrir börn tekin upp og framleidd á Akureyri

Upptökur á glænýrri íslenskri sjónvarpsþáttaröð fyrir börn hófust í síðustu viku hjá N4 á Akureyri og er það í fyrsta sinn sem vitað er að slíkt sjónvarpsefni sé að fullu unnið utan Höfuðborgarsvæðisins. Þættirnir eru gerðir í samstarfi við fræðslusvið þjóðkirkjunnar sem sr. Hildur Björk Hörpudóttir stýrir, og nefnast Himinlifandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá N4.

Þættirnir verða sýndir á N4 í haust á sunnudagsmorgnum og verða auk þess aðgengilegir á samfélagsmiðlum kirkjunnar og N4. Handritshöfundar og aðalleikarar eru hjónin Margrét Sverrisdóttir og séra Oddur Bjarni Þorkelsson á Möðruvöllum sem jafnframt semur tónlist ásamt Rósu Ásgeirsdóttur. Allir þeir sem koma að gerð þáttanna starfa hjá N4 og segist María Björk Ingvadóttir framkvæmdastjóri N4 afar þakklát því trausti sem Kirkjan sýni með því að leita til N4 um gerð þáttanna, með því sé stigið nýtt og stórt skref í að vinna slíka þætti með fagfólki á landsbyggðunum. Pétur G. Markan samskiptastjóri Þjóðkirkjunnar tekur undir þessi orð og segist hlakka til að fylgjast með framvindu vinnunnar.

"Ég tel boðskapinn í þáttunum mikilvægan enda eru kristin gildi eitthvert besta veganesti sem hver og einn getur tekið með sér út á ævibrautina – út í hinn víða heim og aftur heim. Gildi sem við viljum tileinka okkur þar sem náungakærleikur, umhverfisvernd, manngildi, og samkennd er sterki þráðurinn sem allt hverfist um." „Svo er það líka svo að það er afar mikilvægt fyrir landsbyggðarstofnun, eins og þjóðkirkjan er, að vinna metnaðarfullt tímamóta verkefni alfarið norðan heiða. Það sýnir sérstöðu þjóðkirkjunnar sem við erum afar stolt af. Ég er handviss um að verkefnið verði börnum og aðstandendum mikil ánægju blessun og til sóma fyrir þjóðkirkjunnar og N4," segir Pétur í tilkynningunni.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið