Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 14:38 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 14:38 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 14:38 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 14:38 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 14:38 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 14:38 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Síðastliðið ár hefur verið unnið að uppbyggingu glæsilegra baðlóna við Hólanes á Skagaströnd. Áætlað er að heildarfjárfesting við byggingu geti numið um hálfum milljarði króna og að verktími verði um tvö ár. Búið er að tryggja fjármögnun verkefnis að hluta og áætlað að henni ljúki á næstu mánuðum, að því er segir á vef Skagastrandar.
Þar kemur fram að gert er ráð fyrir að lokið verði við hönnunar- og skipulagsvinnu á þessu ári og að framkvæmdir geti hafist á næsta ári miðað við óbreyttar forsendur.
Böðin verða staðsett við sjávarmálið á Hólanesi sem er miðsvæðis á Skagaströnd og skartar tilkomumiklu útsýni yfir Húnaflóann og Strandafjöllin.
„Þessi umfangsmikla uppbygging mun verða mikilvæg lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra og böðin án efa eftirsóknarverður viðkomustaður fyrir þá ferðalanga sem þræða Norðurstrandarleiðina. Þá verða þau einnig kærkomin og heilsueflandi viðbót við þjónustu fyrir heimamenn,“ segir Halldór Gunnar Ólafsson oddviti sveitarstjórnar á Skagaströnd á vef Skagastrandar.
Hér má sjá fyrstu drög að hönnun á svæðinu og útliti á baðstaðnum.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |