Mynd: skagastrond.is
Mynd: skagastrond.is
Fréttir | 31. mars 2021 - kl. 14:12
Glæsileg baðlón rísa á Skagaströnd

Síðastliðið ár hefur verið unnið að uppbyggingu glæsilegra baðlóna við Hólanes á Skagaströnd. Áætlað er að heildarfjárfesting við byggingu geti numið um hálfum milljarði króna og að verktími verði um tvö ár. Búið er að tryggja fjármögnun verkefnis að hluta og áætlað að henni ljúki á næstu mánuðum, að því er segir á vef Skagastrandar.

Þar kemur fram að gert er ráð fyrir að ​lokið verði við hönnunar- og skipulagsvinnu á þessu ári og að framkvæmdir geti hafist á næsta ári miðað við óbreyttar forsendur.

Böðin verða staðsett við sjávarmálið á Hólanesi sem er miðsvæðis á Skagaströnd og skartar tilkomumiklu útsýni yfir Húnaflóann og Strandafjöllin.

„Þessi umfangsmikla uppbygging mun verða mikilvæg lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra og böðin án efa eftirsóknarverður viðkomustaður fyrir þá ferðalanga sem þræða Norðurstrandarleiðina. Þá verða þau einnig kærkomin og heilsueflandi viðbót við þjónustu fyrir heimamenn,“ segir Halldór Gunnar Ólafsson oddviti sveitarstjórnar á Skagaströnd á vef Skagastrandar.

Hér má sjá fyrstu drög að hönnun á svæðinu og útliti á baðstaðnum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga