Fréttir | 01. apríl 2021 - kl. 09:12
Verðhækkun á mjólk og smjöri

Verð á mjólk og smjöri hækkar í dag samkvæmt ákvörðunar verðlagsnefndar búvara. Mjólk hækkar um 3,47% og smjör um 8,47%. Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur, en síðasta verðbreyting fór fram 1. júní 2020. Frá síðustu verðbreytingu til marsmánaðar 2021 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 3,77%. Fyrir sama tímabil er reiknuð hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar afurðastöðva 3,58%.

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi þann 1. apríl 2021:

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 3,77%, úr 97,84 kr./ltr í 101,53 kr./ltr.
  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar um 3,47%, nema smjör sem hækkar um 8,47% og heildsöluverð á mjólkurdufti sem verður óbreytt. Vegin hækkun heildsöluverðs er 3,68%.

Ákvörðun verðlagsnefndar um að halda heildsöluverði á undanrennu- og nýmjólkurdufti óbreyttu og að hækka smjör sérstaklega um 5%, er liður í því að ýta undir betra jafnvægi milli fituríkra og próteinríkra mjólkurvara á markaði og vegna þess að heildsöluverð á smjöri hefur verið undir framleiðslukostnaði um árabil, að því er segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga