Dregið í happdrætti í tengslum við val á slagorði  •   Vettvangsliðar á Skagaströnd fengu fræðslu um ofbeldi í nánum samböndum  •   Vortónleikar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga  •   Aðalfundur Stéttarfélagsins Samstöðu 2024  •   Aðalfundur Styrktarsjóðs Húnvetninga  •   Haldið upp á 150 ára afmæli  •   Hátíðahöld á sumardaginn fyrsta á Hvammstanga  •   Þættir úr sögu sveitar: Margrét á Hóli skrifar bréf  •  
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:12 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:12 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:12 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:12 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:12 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:12 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leita í netfangaskrá
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Fréttir | 01. apríl 2021 - kl. 09:34
Staðnám getur hafist að nýju eftir páska
Staðnám getur hafist að nýju á öllum skólastigum eftir páskafrí með ákveðnum takmörkunum, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð um takmörkun á skólastarfi og var hún unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Tekur hún í meginatriðum mið af appelsínugulum lit í litakóða viðvörunarkerfis fyrir skólastarf sem kynnt var fyrr í vetur, nema hvað íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar. Gildistími reglugerðarinnar er frá 1. apríl til og með 15. apríl.
Leikskólar
- Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri.
- Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn mega fara milli rýma.
- Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli en nota grímu ella.
- Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
- Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímu.
Grunnskólar
- Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu.
- Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma.
- Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella.
- Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi.
- Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil.
Tónlistarskólar
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Annars skal nota grímur sé þess kostur.
- Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 börn á grunnskólaaldri.
- Viðburðir eru heimilir fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri með sömu skilyrðum og gildir um skólastarf þeirra.
- Einstaklingar fæddir 2004 eða fyrr mega vera að hámarki 20 saman í rými og blöndun er heimil.
- Um viðburði fyrir einstaklinga fædda 2004 fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Framhaldsskólar
- Hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna í rými er 30.
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkun milli nemenda og starfsfólks en nota grímu ella.
- Blöndun nemenda milli hópa er heimil og starfsfólk má fara milli rýma.
- Um viðburði tengda starfi eða félagslífi í framhaldsskóla fer eftir ákvæði um sviðslistir í reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.
Háskólar
- Hámarksfjöldi í kennslustofu og lesrýmum er 50.
- Halda skal 2 metra nálægðartakmörkunum milli allra en nota grímu ella.
- Blöndun nemenda ekki heimil.
- Starfsmenn mega fara milli rýma.
- Engir viðburðir eru heimilir í skólabyggingum.
Áréttað er að íþróttir barna á leik- og grunnskólaaldri utan skóla eru óheimilar samkvæmt gildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum.
Mest lesið
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |