Frambjóðendur í forvali VG. Mynd: vg.is
Frambjóðendur í forvali VG. Mynd: vg.is
Fréttir | 03. apríl 2021 - kl. 11:06
Átta gefa kost á sér í forvali VG

Átta gefa kost á sér í fimm efstu sætin hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar en framboðsfrestur er runninn út. Rafrænt forval verður haldið 23.-25. apríl næstkomandi. Kosning hefst á miðnætti 23. apríl og stendur til kl. 17.00 þann 25. apríl. Kosið verður um fimm efstu sæti á listanum, þar af bindandi í efstu þrjú en í samræmi við forvalsreglur VG. Atkvæðisbær í forvalinu eru öll þau sem skráð eru í hreyfinguna í kjördæminu 10 dögum fyrir kjörfund.

Í framboði eru:

Bjarni Jónsson, fiskifræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi, 1. sæti
Lárus Ástmar Hannesson, grunnskólakennari og bæjarfulltrúi, 3.-5. sæti
Lilja Rafney Magnúsdóttir, alþingismaður, 1. sæti
María Hildur Maack, umhverfisstjóri, 3.-5. sæti
Nanný Arna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri og bæjarfulltrúi, 3.-5. sæti
Sigríður Gísladóttir, dýralæknir, 2.-4. sæti
Þóra Magnea Magnúsdóttir, kennari, 2.-3. sæti
Þóra Margrét Lúthersdóttir, sauðfjár- og skógarbóndi, 2.-3. sæti

Tveir rafrænir framboðsfundir verða haldnir og opnir öllum,

10. apríl kl. 12.00 
19. apríl kl. 20.00.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, stýrir fundunum. Hlekk á fundina verður hægt að nálgast á vg.is og á samfélagsmiðlum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga