Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:53 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:53 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:53 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:53 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:53 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:53 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu fjarskipta, þriðjudaginn 13. apríl klukkan 10:00-11:30. Á fundinum verður fjallað um fjarskipti á svæðinu, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum.
Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu fjarskiptamála. Fundarstjóri er Jón Björn Hákonarson, formaður fjarskiptaráðs og bæjarstjóri í Fjarðabyggð.
Eftir kynningar og framsögur er fundargestum skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni. Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.
Skráningarsíða er hér: https://bit.ly/3dSstUw
Vefsíða um grænbók um fjarskiptamál er hér: https://bit.ly/3mBToYp
Skráningu lýkur klukkan 9:00 þriðjudaginn 13. apríl. Þeir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.
Dagská fundarins:
- Jón Björn Hákonarson, formaður fjarskiptaráðs, setur fund.
- Ottó V. Winther, verkefnisstjóri fjarskiptaáætlunar, fer stuttlega yfir ferli vinnu við gerð nýrrar fjarskiptaáætlunar og tengda þætti.
- Formaður fjarskiptaráðs fer yfir stöðu helstu aðgerða gildandi fjarskiptaáætlunar og áskoranir.
- Erindi:
- Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri, Húnaþingi vestra.
- Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélaginu Skagafirði. - Þátttakendum skipt í umræðuhópa sem velja sér forsvarsmanneskju ræða og taka saman svör við lykilspurningum.
- Fólk í forsvari umræðuhópa skýra stuttlega frá niðurstöðum.
- Opnar umræður í lokin.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |