Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:16 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:16 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:16 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:16 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:16 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:16 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Heilbrigðisráðherra hefur kynnt tilslakanir á samkomutakmörkunum og í skólastarfi frá 15. maí næstkomandi og eru þær í samræmi við tillögur sóttvarnarlæknis. Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 10 í 20 manns, hægt verður að hefja íþróttastarf, sund og heilsurækt með takmörkunum, sviðslistir einnig og skíðasvæðin geta opnað á ný. Í skólum breytast nálægðarmörk á öllum skólastigum úr 2 metrum í 1 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf á ný.
Reglugerðir um breytingarnar eru í vinnslu og verða birtar síðar í dag, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. Gert er ráð fyrir að þær gildi í 3 vikur.
Helstu breytingar á almennum samkomutakmörkunum:
Í meginatriðum verður um sambærilegar takmarkanir að ræða á samkomum og giltu frá 5. febrúar síðastliðnum. Minnt er á mikilvægi þess að fólk gæti vel að sóttvörnum og fylgi reglum.
- Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
- Sund- og baðstöðum og heilsu- og líkamsræktarstöðvum heimilt að opna fyrir 50% af leyfilegum hámarksfjölda gesta, auk annarra skilyrða.
- Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna með og án snertinga í öllum íþróttum heimilar, án áhorfenda. Hámarksfjöldi fullorðinna verður 50 manns en fjöldi barna fer eftir sömu takmörkunum og í skólastarfi.
- Skíðasvæðum heimilt að taka á móti 50% af hámarksfjölda móttökugetu hvers svæðis.
- Sviðlistir, þar með talið kórastarf, heimilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitjandi gestum í hverju hólfi, auk annarra skilyrða.
- Hámarksfjöldi við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga áfram 30 manns en fjölgar í 100 manns við útfarir.
- Öllum verslunum heimilt að taka á móti 5 viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 manns, auk 20 starfsmanna í sama rými og viðskiptavinir.
- Skemmtistöðum, krám, spilasölum og spilakössum heimilt að hafa opið með sömu skilyrðum og veitingastöðum þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar.
- Verklegt ökunám og flugnám með kennara heimilt.
Breytingar í skólastarfi:
Heilbrigðisráðuneytið vinnur að gerð nýrrar reglugerðar um takmörkun á skólastarfi frá 15. apríl í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið. Í meginatriðum verða gildandi reglur óbreyttar nema hvað nálægðarmörk verða 1 metri í stað 2 og leik- og grunnskólabörnum verður heimilt að stunda íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |