Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:50 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:50 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:50 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:50 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:50 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:50 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið stóð í gær fyrir samráðsfundi um fjarskiptamál í samvinnu við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Fundurinn var liður í vinnu ráðuneytisins við gerð hvítbókar um fjarskiptamál í tengslum við nýja fjarskiptaáætlun sem nú er í vinnslu. Á vef SSNV kemur fram að fundurinn var fjölsóttur og sköpuðust á honum góðar umræður um stöðu fjarskiptamála í héraðinu og þau brýnu verkefni sem þar standa fyrir dyrum.
Á vef SSNV kemur fram að á fundinum fór Ottó Winther verkefnisstjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu yfir vinnuferli fjarskiptaáætlunar, Jón Björn Hákonarson formaður fjarskiptaráðs fjallaði um þann árangur sem náðst hefur í fjarskiptamálum síðustu ár og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir.
Jafnframt héldu erindi þau Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir Sveitarstjóri í Húnaþingi vestra og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri sveitarfélagsins Skagafjarðar. Ragnheiður Jóna fjallaði um þær aðstæður sem sköpuðust í fjarskiptamálum í óveðrinu í desember 2019 og mikilvægi þess að úrbætur verði gerðar svo viðlíka aðstæður skapist ekki í framtíðinni. Sigfús Ingi fjallaði um þróun háhraðatenginga, verkefnið Ísland ljóstengt og þau verkefni sem enn standa eftir með tilliti til ljósleiðaravæðingar í sveitarfélaginu.
Í kjölfar erinda var fundarmönnum skipt upp í vinnuhópa þar sem fjallað var um nýlegar aðgerðir sem hafa haft góð/jákvæð áhrif í landshlutanum, helstu áskoranir í fjarskiptamálum innan landsvæðisins og hvaða tækifæri er til framfara. Niðurstöður umræðna hópanna verða innlegg inn í vinnu við gerð fjarskiptaáætlunar.
„Ljóst er að áhugi á málaflokknum er mikill enda hefur mikilvægi fjarskipta og gangatenginga aukist harðbyri undanfarin ár,“ segir á vef SSNV.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |