Sumardekk
Sumardekk
Fréttir | 15. apríl 2021 - kl. 09:17
Tími dekkjaskipta runninn upp

Nú er tími sumardekkja runninn upp en óheimilt er að aka um á nagladekkjum eftir 15. apríl. Yfirleitt eru ekki gerðar athugasemdir við það þó nagladekk séu undir bílum út aprílmánuð, enda allra veðra von. Eftir þann tíma geta ökumenn búist við því að verða stöðvaðir af lögreglu og sektaðir fyrir notkun negldra hjólbarða, allt að 20 þúsund krónur á hvert dekk.

Dekkin undir bílnum eru einn stærsti öryggisþáttur hans og geta skipt sköpum þegar á reynir. þau mynda einu snertingu bílsins við veginn og því er afar mikilvægt að þau séu alltaf í góðu lagi. Ökumenn þurfa því að huga vel að sumardekkjum sínum, að þau séu í lagi og ef ekki þá að fjárfesta í nýjum.

Gott er að huga að aldri dekkjanna en flestöll hafa þau lítinn ramma sem segir til um viku ár og ár þegar dekkið var framleitt. Gömul dekk en óslitin geta verið jafn hættuleg og slitin dekk. Mynstursdýpt dekkja skiptir miklu máli fyrir veggrip þeirra og öryggi. Mynstrið á að vera að minnsta kosti 1,6 millimetra djúpt. Til samanburðar er mynstursdýpt nýrra dekkja yfirleitt að minnsta kosti 9 millimetrar. Í lögum segir einnig að dekk undir bifreið sem er 3,5 tonn eða minna að leyfilegri heildaþyngd eigi öll að vera sömu gerðar.

Gott er að huga að loftþrýstingi dekkja en sé hann of mikill eða of lítill minnkar snertiflötur dekkjanna og um leið veggrip þeirra. Réttan þrýsting má finna í handbók bílsins eða inn í hurðastaf bílstjóramegin eða í bensínloki. Þá er mikilvægt að dekkin sé rétt jafnvægisstillt en dekk í ójafnvægi hafa veruleg áhrif á aksturshæfni og eldsneytiseyðslu. Auk þess getur verið mikilvægt að þvo sumardekkin með dekkja- eða tjöruhreinsi áður en þau er sett undir bílinn. Hein dekk grípa betur.

Nú ef kaupa þarf ný sumardekk borgar sig að vanda valið og mikilvægt að hafa í huga að margir þættir skipta máli í gæðum dekkja, svo sem viðnám, hávaði og grip í bleytu. Þeir sem selja dekk er skylt að hafa þau merkt með upplýsingum um samræmdar gæðaprófanir og þannig má gera áreiðanlegan samanburð á gæðum og öryggi dekkjanna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga