Fréttir | 20. apríl 2021 - kl. 14:56
Íbúafundir fara fram í maí og júní

Í tengslum við sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu var áætlað að halda íbúafundi í Húnavatnshreppi og Skagabyggð í lok apríl. Þeim áformum hefur nú verið frestað til loka maí og byrjun júní vegna aðstæðna og þróunar heimsfaraldursins, eins og segir á vef Húnvetnings og munu fundirnir fara fram að sauðburði loknum. Kynningarbæklingi verður dreift í öll hús um miðjan maí.

Með fyrirvara um að aðstæður í samfélaginu leyfi verða íbúafundir haldnir á eftirfarandi stöðum:

Félagsheimilinu á Blönduósi. Miðvikudaginn 19. maí, kl. 20.00.
Fellsborg á Skagaströnd. Fimmtudaginn 20. maí, kl. 20.00.
Húnavöllum í Húnavatnshreppi. Mánudaginn 31. maí, kl. 20.00.
Skagabúð í Skagabyggð. Þriðjudaginn 1. júní, kl. 20.00.

Íbúum er frjálst að sækja fundi á þeim stöðum og tímasetningum sem þeim best henta.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga