Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 15:11 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 15:11 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 15:11 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 15:11 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 15:11 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 15:11 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sumardagurinn fyrsti er í dag og þá fagna landsmenn komu sumarsins. Íslensk þjóðtrú segir að ef sumar og vetur frjósi saman boði það gott sumar, en með því er átt við að hiti fari niður fyrir frostmark aðfararnótt sumardagsins fyrsta. Ólíklegt er að það hafi gerst í Húnavatnsýslum að þessu sinni en við treystum auðvitað á að sumarið verði okkur farsælt og gott. Í dag er einnig Dagur jarðar sem haldinn hefur verið 22. apríl ár hvert síðan 1970.
Degi jarðar er ætlað að vekja athygli heimsins á loftlagsbreytingum og hlýnun jarðar, hvetja alla til að vinna að verndum umhverfisins og minna okkur á að fara vel með jörðina. Á hverju ári er fjallað um margar ólíkar leiðir til að fara vel með jörðina og umhverfið, þar á meðal endurvinnslu, aðferðir til að minnka mengun og umhverfisvænar vörur.
Íslendingar eiga reyndar sinn eigin dag umhverfisins, sem er 25. apríl ár hvert. Dagurinn er tileinkaður Sveini Pálssyni lækni sem fæddist þann dag árið 1762. Sveinn var annálaður fræðimaður, rithöfundur, læknir og ferðagarpur sem var frumkvöðull í rannsóknum á náttúru landsins og þá sérstaklega jöklunum. Hann er talinn meðal fyrstu Íslendinganna sem vöktu athygli á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, og vegna þess var dagur umhverfisins tileinkaður honum.
Talandi um umhverfismál, þá má minna á Stóra plokkdaginn sem verður haldinn laugardaginn 24. apríl, fjórða árið í röð. Plokkarar alls staðar á landinu eiga mikið verk fyrir höndum að losa umhverfið við allskonar drasla m.a. einnota grímur og hanska sem fylgir COVID-19 faraldrinum.
Húnahornið óskar Húnvetningum sem og landsmönnum öllum gleðilegs sumars.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |