Stjórn FEBH
Stjórn FEBH
Fréttir | Tilkynningar | 22. apríl 2021 - kl. 12:22
Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi
Frá stjórn FEBH

Aðalfundur Félags eldri borgara í Húnaþingi var haldinn á Blönduósi í gær 21.4.2021. Fundarstörf voru með hefðbundnum hætti með tilheyrandi Covid sóttvarnir að leiðarljósi. Ásgerður Pálsdóttir var endurkjörinn formaður til næstu tveggja ára og Gréta Björnsdóttir og Ragnheiður Þorsteinsdóttir voru endurkjörnar í aðalstjórn til tveggja ára.

Ferðanefnd var kosin til eins árs. Hana skipa: Sigrún Grímsdóttir, Kolbrún Zophoníasdóttir, Magnús Ólafsson, Bóthildur Halldórsdóttir og Ágúst Sigurðsson. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu hefur starf félagsins legið að mestu niðri síðasta ár en vonandi fer að birta til í þeim efnum. Fullbókuð er ferð á Snæfellsnes í lok ágúst og og styttri ferðir í undirbúningi.

Þá var rætt um húsnæðisvanda bæði félagsins og félagsstarfs aldraðra og nauðsyn þess að koma þeim málum í betra horf. Tölvunámskeið fyrir eldri borgara verða haldin á vegum Farskólans og Arion banka nú á næstu vikum og verða nánar auglýst. Margt fleira var rætt s.s. málssókn Gráa hersins og áhersluatriði Landssambands eldri borgara ( LEB). Margrét Einarsdóttir kynnti ársreikning Sólhvamms.

Þá voru bornar fram góðar þakkir og bestu batakveðjur til Róberts Jónssonar,  forstöðumanns Íþróttamiðstöðvarinnar og  einnig kveðjur og þakkir til forsvarsmanna Blönduóssbæjar fyrir aðstöðu til heilsuræktar eldri borgara í Íþróttamiðstöðinni. Nú þarf að efla það starf öllum til hagsbóta, og kynna það vel. Félagsmenn eru nú rúmlega 130. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga