Fréttir | 23. apríl 2021 - kl. 14:01
Nýr ungmennavefur Alþingis

Nýr ungmennavefur Alþingis hefur verið opnaður. Vefurinn er ætlaður nemendum í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum, og auðvitað er öllum öðrum einnig velkomið að nýta sér hann til að afla upplýsinga um starfsemi Alþingis, segir í tilkynningu frá Alþingi. Í hugtakasafni er hægt er fletta upp helstu hugtökum sem gagnlegt er að þekkja til að skilja betur störf Alþingis.

Sýnt er á myndrænan hátt hvernig frumvarp verður að lögum, með sýnidæmum úr þrennum mismunandi lögum. Hægt er að velja lagafrumvarp til að máta við ferlið, sjá hvernig það hefur farið í gegnum þingið og hvaða breytingum það hefur tekið á leiðinni. Á söguás er stiklað á helstu tímamótum í sögu Alþingis og raktar mikilvægustu breytingar sem orðið hafa á Alþingi og umhverfi þess frá stofnun til samtíma.

Sögu Alþingishússins og Alþingisgarðsins er einnig gerð skil og bent er á ýmsar leiðir til að fylgjast með störfum Alþingis og hafa áhrif á gang mála. Loks eru á vefnum þrautir og verkefni fyrir nemendur til að spreyta sig á, til stuðnings við kennslu í samfélagsfræði, sögu og stjórnmálafræði.

Sjáðu ungmennavef Alþingis hér: www.ungmennavefur.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga