Fréttir | 23. apríl 2021 - kl. 15:10
HSN fær 4.000 skammta af bóluefni í næstu viku

Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær 4.000 skammta af bóluefni gegn COVID-19 í næstu viku. Bóluefnið frá Astra Zeneca verður nýtt til að hefja bólusetningu hjá íbúum sem fæddir eru árið 1961 og fyrr og gerir heilbrigðisstofnunin ráð fyrir að fara langt með þann hóp. Pfizer bóluefnið verður nýtt í seinni bólusetningu þeirra sem fengu bóluefni 6. - 9. apríl síðastliðinn og fyrri bólusetningu hjá þeim sem eru yngri en 60 ára og hafa undirliggjandi sjúkdóma.

Á heilsugæslum á Norðurlandi, öðrum en á Akureyri, mun fólk í þessum árgöngum og hópum fá boð í bólusetningu, annað hvort með sms skilaboðum eða með símtali, þar sem tími og staðsetning kemur fram.

Sjá nánar á vef HSN.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga