Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:16 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:16 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:16 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:16 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:16 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:16 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Stóri plokkdaginn verður haldinn hátíðlegur fjórða árið í röð á morgun, laugardaginn 24. apríl. Framundan er mikið verkefni við að losa umhverfið við einnota grímur og hanska sem fylgt hafa kórónuveirufaraldrinum. Allstaðar um landið eru öflugir plokkarar farnir að undirbúa daginn. Plokk á Íslandi heldur út virkum hópi á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem um sjö þúsund meðlimir deila myndum af sínu plokki og sinni útivist. Óhætt er að segja að plokkarar vinni mikið afrek í þágu umhverfisins og samfélagsins alls.
Grímulaust umhverfi
„Það er gaman að því að eftir að ný lög um plastpoka tóku gildi þá sjá plokkarar breytingu í umhverfinu til hins betra hvað það varðar. Stóra iðnaðarplastið er þó ennþá alltof áberandi í umhverfinu okkar og þegar grímu- og hanskanotkun varð almennari sem vopn í baráttunni við Covid hefur hvort tveggja hrannast upp í umhverfinu okkar. Þess vegna tileinkum við Stóra plokkdaginn í ár Grímulausum áróðri,“ segir Gunnella Hólmarsdóttir, verkefnisstjóri Stóra plokkdagsins í ár.
Íbúar og fyrirtæki hvött til þátttöku í Húnavatnssýslum
Húnaþing vestra hvetur íbúa og fyrirtæki til þátttöku í Stóra plokkdeginum. Á opnunartíma Hirðu á Hvammstanga laugardaginn 24. apríl verður hægt að nálgast ruslapoka til að fara út að plokka/tína rusl og fá ruslatínur til láns. Opnunartími Hirðu á laugardögum er frá kl. 11:00-15:00. Þeir sem fara út að plokka geta koma með fulla poka í Hirðu og eftir það er hægt að setja pokana fyrir utan girðinguna.
Blönduósbær hvetur íbúa sveitarfélagsins til þess að fegra umhverfið sitt á Stóra plokkdeginum. Gámaplanið á Blönduósi verður opið frá klukkan13:00-17:00, þar er hægt að nálgast poka og skila. Heitt verður á könnunni o.fl. fyrir duglega plokkara, að því er segir á vef bæjarins.
Sveitarfélagið Skagaströnd hvetur alla til þess að taka þátt í Stóra plokkdeginum og mun staðsetja einn gám við Spákonuhof og annan við Skagaveg norðan við skátabraggann (á Kröfluplani) þar sem hægt verður að losa sig við það rusl sem safnast saman! Gámarnir verða til taks alla helgina. „Að plokka gefur fólki tækifæri á að sameina útiveru og hreyfingu sem og að sýna umhverfinu og samfélaginu kærleik í verki. Margt smátt gerir eitt stórt,“ segir á vef Skagastrandar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |