Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 16:32 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 16:32 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 16:32 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 16:32 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 16:32 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 16:32 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Heilbrigðisráðuneytið kynnti í morgun áætlun um afléttingu innanlandstakmarkana vegna COVID-19 í áföngum með hliðsjón af framgangi bólusetningar. Áætlað er að aflétta megi öllum innanlandstakmörkunum síðari hlutann í júní þegar um 75% þjóðarinnar hafi fengið a.m.k. einn bóluefnaskammt. Áætlunin verður birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og lýkur umsagnarfresti 4. maí næstkomandi.
Afléttingaráætlunin er í fjórum skrefum og tekur mið af framgangi bólusetningar. Áætlunin er sett fram með hliðsjón af því hve hratt gengur að bólusetja landsmenn og er jafnframt birt með fyrirvara um mat sóttvarnalæknis á aðstæðum og stöðu faraldursins á hverjum tíma.
Fyrsta skref afléttingar hefur þegar verið tekið með tilslökunum á samkomutakmörkunum og í skólastarfi sem tóku gildi 15. apríl síðastliðinn. Þá voru fjöldatakmörk aukin úr 10 í 20 manns, opnað var fyrir starfsemi sundlauga, líkamsræktarstöðva o.fl. með takmörkunum, hægt var að hefja sviðslistastarf á ný og sitthvað fleira.
Fyrri hluti maí: Fleiri megi koma saman
Áætlað er að snemma í maí verði unnt að stíga annað skref til rýmkunar á innanlandstakmörkunum þegar a.m.k. 35% landsmanna hafa fengið bólusetningu. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hækka fjöldatakmarkanir og er miðað við mörk á bilinu 20 - 200 manns. Einnig er gert ráð fyrir rýmri undanþágu frá nálægðarreglu og fjöldatakmörkun fyrir tiltekna starfsemi.
Síðari hluti maí: Nálægðarmörk verða 1 metri og fjöldatakmörk rýmkuð enn frekar
Síðari hlutann í maí er gert ráð fyrir að a.m.k. 50% landsmanna hafi fengið bólusetningu og að bólusetning einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma sé komin vel á veg. Þá verði unnt að rýmka fjöldatakmarkanir til muna, sem verði einhvers staðar á bilinu 100 til 1.000 manns. Samhliða verði nálægðarmörk færð úr tveimur metrum í einn.
Síðari hluti júní: Öllum takmörkunum aflétt innanlands
Gert er ráð fyrir að aflétta megi öllum takmörkunum innanlands seinni hlutann í júní. Á þeim tíma er gert ráð fyrir að búið verði að bólusetja um 75% landsmanna að minnsta kosti einu sinni.
Forsendur afléttingaráætlunarinnar eru annars vegar fyrirliggjandi áætlanir um afhendingar bóluefna ásamt markmiðum samninga um afhendingu og hins vegar bólusetningaráætlun embættis landlæknis.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |