Mynd: hunvetningur.is
Mynd: hunvetningur.is
Fréttir | 02. maí 2021 - kl. 09:52
Framtíðarsýnin að Austur-Húnavatnssýsla verði umhverfisvænasta samfélag landsins

Oddvitar sveitarstjóra í Austur-Húnavatnssýslu hafa átt fjarfundi með þingflokkum á Alþingi í apríl. Á þeim hefur fyrirhuguð sameining sveitarfélaganna verið kynnt og spurningum þingmanna svarað. Meginmarkmið fundanna var jafnframt að koma hagsmunamálum Húnvetninga á dagskrá. „Næstu skref eru að fylgja málum eftir við ríkisstjórn. Fyrirhugað er að eiga fund samgöngu-og sveitarstjórnarráðherra á næstu dögum,“ segir á Húnvetningi, vef sameiningarverkefnisins.

Þar kemur fram að á fundunum hafi sú framtíðarsýn verið kynnt að Austur-Húnavatnssýsla verði umhverfisvænasta samfélag landsins. Stofnun Umhverfisakademíu og markviss stefnumótun séu meðal fyrstu aðgerða í þá átt.

„Austur-Húnavatnssýsla hefur átt undir högg að sækja undanfarna áratugi og brýnt er að setja mikinn kraft í atvinnuþróun og byggðaaðgerðir,“ segir á vefnum. Farið var fram á stuðning stjórnvalda við stofnun Umhverfisakademíu á Húnavöllum, uppbyggingu ferðamannastaða og fjölgun starfa við Innheimtustofnun sýslumanns á Blönduósi og Vinnumálastofnunar á Skagaströnd. Þá var bent á að aðgerðir og ívilnanir sem snúa að byggðakvóta, línuívilnun og strandveiðum myndu auk þess styrkja atvinnulífið hratt og örugglega.

Á fundunum var höfuðáhersla lögð á stóraukið viðhald héraðs- og tengivega. Ástand héraðs- og tengivega standi uppbyggingu fyrir þrifum og skerði lífsgæði íbúa, en fjölmargir íbúar í dreifbýlinu aki daglega um vegina vegna vinnu eða skóla.

Forgangsverkefni Húnvetninga sé að byggja upp og leggja slitlag á eftirfarandi vegi:

Skagavegur um Skaga um 12 km.
Þingeyrarvegur um 6 km.
Svínvetningabraut um 27 km.

Þá var farið fram á að flugvöllurinn á Blönduósi, verði eins fljótt og auðið er, lagður bundnu slitlagi til að hann geti sinnt hlutverki sínu sem sjúkraflugvöllur og að fjármagn verði tryggt til áframhaldandi framkvæmda við höfnina á Skagaströnd.

Hér má sjá minnisblaðið sem lagt var fram á fundunum.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga