Fréttir | 05. maí 2021 - kl. 21:57
Flugvél hlekktist á við Blönduósflugvöll í gær

Lítilli flugvél hlekktist á við lendingu við flugvöllinn á Blönduósi í gær en greint var frá því á vefnum www.visir.is. Engan sakaði en tveir voru um borð í vélinni. Neyðarsendir vélarinnar var ræstur þegar vélin var á flugi í nágrenni við Blönduósflugvöll og var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út í mesta forgangi segir í fréttinni.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga