Fréttir | 17. maí 2021 - kl. 11:26
Afhending verðlauna í Ullarþoni og formleg opnun TextílLabs

Það er stór vika framundan hjá Textílmiðstöð Íslands en hún stendur fyrir tveimur viðburðum tengdum HönnunarMars 2021; afhending verðlauna í Ullarþoni og formleg opnun TextílLabs á Blönduósi. Verðlaunin í Ullarþoninu verða afhent af Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, fimmtudaginn 20. maí klukkan 17 á svæði Textílfélagsins á Hafnartorgi. Formleg opnun TextílLabs verður á Blönduósi 21. maí klukkan 14.

Markmið Ullarþonsins var að finna leiðir til að auka verðmæti verðminnstu ullarflokkana með tilliti til hringrásarhagkerfisins. Á facebookarsíðu Ullarþonsins má sjá myndband með topp 5 í hverjum keppnisflokki.

TextílLab er á vegum Textílmiðstöðvar Ísland og það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Það er staðsett á Þverbraut 1 á Blönduósi og gefur aðgengi að stafrænni tækni til rannsókna, þróunar og nýsköpunar. Verkefnið hlaut uppbyggingarstyrk frá Innviðasjóði og er hluti af alþjóðlegu verkefni CENTRINNO sem Textílmiðstöð tekur þátt í, styrkt af Horizon2020 rannsóknaráætlun ESB. 

Eftir formlegri opnun TextílLabs á Blönduósi (Þverbraut 1) föstudaginn, 21. maí klukkan 14:00, verður opið hús til kl. 20:00. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir munu ávarpa gesti og að klippa í sameiningu á þráðinn þegar TextílLab verður opnað.

Sjá einnig dagskrá https://honnunarmars.is/dagskra/2021/textill-tilraunir-og-taekni.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga