Fréttir | 18. maí 2021 - kl. 11:11
Fyrsti íbúafundurinn um sameiningu sveitarfélaga í A-Hún. er á Skagaströnd í kvöld

Í dag fer fram fyrsti íbúafundurinn þar sem tillaga samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu verður kynnt. Fundurinn fer fram í Fellsborg á Skagaströnd og hefst klukkan 20 í kvöld. Annar fundur verður haldinn á morgun í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst einnig klukkan 20. Íbúum í Austur-Húnavatnssýslu er frjálst að sækja fundi á þeim stöðum og tímasetningum sem þeim best henta.

Í ljósi samkomutakmarkana er mikilvægt fyrir skipuleggjendur að vita hve margir íbúar mæta á hvern fund. Þeir sem ætla að mæta á á staðinn þurfa að skrá sig fyrirfram hér á vefnum.

Fundirnir verða sendir út rafrænt á Zoom og verður streymt á facebooksíðunni Húnvetningi. Þátttakendur í fundarsal og þeir sem fylgjast með rafrænt geta sent spurningar til samstarfsnefndar í gegnum samráðsforritið menti.com.

Á menti.com er hægt að gefa spurningum annarra atkvæði til að færa þær framar í röðinni eða skrá inn nýja spurningu. Einnig verður boðið upp á hnitmiðaðar spurningar úr sal.

Mánudaginn 31. maí fer svo þriðji fundurinn fram á Húnavöllum klukkan 20 og fjórði og síðasti fundurinn verður í Skagabúð þriðjudaginn 1. júní klukkan 20.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga