Tilkynningar | 22. maí 2021 - kl. 07:43
Dagsferð í Skagafjörð fyrirhuguð
Frá ferðanefnd Félags eldri borgara í Húnaþingi

Fyrirhuguð er dagsferð í Skagafjörð þann 9. júní næstkomandi ef næg þátttaka fæst. Farið verður í Kakalaskála að Kringlumýri, Laugarmýri (blóm og matjurtir) og drukkið kaffi í Áskaffi í Glaumbæ. Aðgangur að Kakalaskála er kr. 2.100 fyrir eldri borgara, ferðakostnaður kr. 2.500, en Félag eldri borgara greiðir fargjald að hálfu.

Þátttaka tilkynnist fyrir 2. júní í síma 864 0538 Sigrún, eða 690 3124 Kolla Z.

Ferðanefndin.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga