Tilkynningar | 24. maí 2021 - kl. 08:56
Frá Hollvinum HSB

Gleðilegt sumar kæru Húnvetningar, félagsmenn og velunnarar. Hollvinasamtökin áttu  15 ára afmæli þann 19. apríl 2020. Ekki var hægt að halda upp á daginn í fyrra, en nú langar okkur til að færa Heilbrigðisstofnunni á Blönduósi afmælisgjöf af þessu tilefni og leitum við því aðstoðar ykkar.

Nýverið var gert upp baðherbergi á sjúkradeild A og þar vantar baðstól. Þá er verið að gera endurbætur á 4. hæð (baðstofunni) þar sem heldriborgara stofnunarinnar hafa aðstöðu. Þar vantar snjall sjónvarp. Þessi tæki kosta um 900 þúsund samtals.

Þar sem einu tekjurnar okkar eru félagsgjöldin og sala minningarkorta, þá er allur stuðningur við okkur vel þeginn. Reikningsnúmerið er 0307-26-270 og kennitala 490505-0400.

Með von um góðar undirtektir.

Stjórn Hollvinasamtaka HSB

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga