Fréttir | 26. maí 2021 - kl. 11:52
Styttist í Prjónagleðina

Prjónagleði er prjónahátíð sem haldin er á Blönduósi í júní ár hvert. Markmið hennar er að sameina prjónafólk og skapa því vettvang til þess að hittast og miðla prjónasögum, nýjum hugmyndum og aðferðum, gömlum hefðum og síðast en ekki síst prjónagleðinni í öllum sínum fjölbreytileika. Prjónagleðinni 2021 verður haldin frá 11.-13. júní næstkomandi.

Á prjónagleðinni er boðið upp á fjölbreytt úrval námskeiða og fyrirlestra auk ýmissa viðburða sem allir tengjast prjónaskap og garni á einhvern hátt.  Á hátíðinni er markaðstorg þar sem m.a. handlitarar, garnframleiðendur, prjónaverslanir, handverksfólk og hönnuðir sýna og selja spennandi vörur fyrir prjónalífið.

Í tengslum við hátíðina ár hvert er haldin hönnunar- og prjónasamkeppni, þar sem vegleg verðlaun eru í boði. 

Dagskrá Prjónagleðinnar 2021 má sjá hér.

Opið er fyrir skráningar á námskeið Prjónagleðinnar en fullt af spennandi námskeiðum er í boði sem má sjá hér.

Allar nánari upplýsingar um Prjónagleðina má sjá hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga