Vegvísir, nýr upplýsingavefur. Mynd: stjornarradid.is
Vegvísir, nýr upplýsingavefur. Mynd: stjornarradid.is
Fréttir | 02. júní 2021 - kl. 07:35
Nýr upplýsingavefur um samgöngur, fjarskipti og byggðamál

Vegvísir.is er nýr gagnvirkur upplýsingavefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Vefnum er ætlað að vera leiðarvísir almennings að lykilupplýsingum um samgöngur, fjarskipti og byggðamál. Á vef stjórnarráðsins segir að vegvísirinn marki tímamót með nýstárlegri framsetningu á opinberum gögnum, en þar verður hægt að fylgjast með fjármögnun, framvindu og árangri í yfir 500 verkefnum og stöðu 60 árangursmælikvarða.

Á vefnum eru upplýsingar um markmið, aðgerðir, fjármagn, framvindu og árangur í þremur lykiláætlunum ráðuneytisins – samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnaði vefinn formlega á kynningarfundi um Vegvísi í gær: „Það er afar þýðingarmikið að efla stafræna þjónustu og veita enn betri aðgang að opinberum gögnum. Það er því sérstakt gleðiefni að geta nú gefið fólki kost á að fylgjast með fjölmörgum verkefnum og framkvæmdum hins opinbera á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála á nýjum og glæsilegum upplýsingavef,“ sagði ráðherra.

Hægt er að skoða aðgerðir og framkvæmdir ýmist á korti (kortasjá) eða í lista (aðgerðayfirlit). Hægt er að kalla fram ýmsar upplýsingar eftir áætlunum og leitarskilyrðum. Til að fá fram ítarlegri upplýsingar um hverja aðgerð er smellt á viðeigandi tákn á kortinu. Þá er hægt að skoða allar upplýsingar og framvindu verkefna eftir landshlutum.

Þrjár af áætlunum ráðuneytisins; samgönguáætlun, byggðaáætlun og fjarskiptaáætlun eru settar fram á vefnum með mun aðgengilegri hætti en áður. Þær verða áfram aðgengilegar í þingskjölum eins og tíðkast hefur um langt skeið. Stefnt er að því að upplýsingar um verkefni og mælikvarða úr sveitarstjórnaráætlun bætist við fyrr en síðar.

Vegvísir er unnin í samstarfi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og stofnana ráðuneytisins sem eru: Byggðastofnun, Póst- og fjarskiptastofnun, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands. Eins veitir Isavia upplýsingar um stöðu verkefna á flugvöllum.

Skoðaðu Vegvísinn hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga