Hólaneskirkja
Hólaneskirkja
Tilkynningar | 03. júní 2021 - kl. 18:42
Frá Skagastrandarprestakalli

Guðsþjónusta í Hólaneskirkju Sjómannadaginn 6. júní 2021 kl. 11.00. Skrúðganga leggur af stað frá hafnarsvæðinu til Hólaneskirkju kl. 10.30.

Í guðsþjónustunni syngjum við saman sjómannalög og sálma undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Séra Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari.

Ræðumaður dagsins er Guðmundur Finnbogason.

Að athöfn lokinni verður gengið að minnisvarðanum um drukknaða sjómenn frá Skagaströnd sem stendur við kirkjuna og lagður þar blómsveigur.

Fyllum kirkjuna með söng og gleði í tilefni Sjómannadagsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga