Fréttir | 05. júní 2021 - kl. 22:41
Sameiningartillagan felld í Skagabyggð

Meirihluti íbúa í Skagabyggð sögðu nei við sameiningartillögu samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu. Á kjörskrá voru 70 og greiddu 53 atkvæði eða 76%. Tuttugu og níu sögðu nei við tillögunni og tuttugu og fjórir sögðu já.

Sveitarstjórnirnar fjórar hafa lýst því yfir að þær muni ekki nýta heimild í sveitarstjórnarlögum, komi til þess að sameiningartillaga verði samþykkt af íbúum í hluta sveitarfélaganna, nema að undangengnu samráði við íbúa. Í því felst að hafni íbúar einhvers sveitarfélaganna tillögu um sameiningu í kosningum, munu aðrar sveitarstjórnir ekki taka ákvörðun um sameiningu þeirra sveitarfélaga án þess að hafnar verði nýjar sameiningarviðræður og kosið að nýju.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga