Mynd: hunathing.is
Mynd: hunathing.is
Fréttir | 15. júní 2021 - kl. 08:56
Íbúafundur á Borðeyri um nýtingu vindorku

Í dag fer fram íbúafundur og kynning í Húnaþingi vestra á hugmyndum um nýtingu vindorku í landi Sólheima í Dalabyggð. Fundurinn fer fram í Tangarhúsi á Borðeyri og hefst klukkan 17. Fulltrúar Qair og EFLU munu kynna stöðu skipulagsmála og fyrirtækið Qair - vindorkugarð í landi Sólheima. Að loknum kynningum munu fara fram umræður þar sem kostur gefst á að bera fram spurningar.

Fundurinn er öllum opinn en íbúar í Húnaþingi vestra eru sértaklega hvattir til að mæta. Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga