Fréttir | 15. júní 2021 - kl. 09:46
Nú mega 300 manns koma saman

Á miðnætti gengu nýjar reglur í gildi um samkomutakmarkanir en þær eru í samræmi við minnisblað sóttvarnalæknis frá 10. júní. Nú mega 300 manns koma saman í stað 150 og nándarreglan verður einn metri í stað tveggja. Á sitjandi viðburðum verður engin nándarregla en öllum skylt að bera grímu. Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, þ.e. til miðnættis.

Helstu breytingar á samkomutakmörkunum frá og með 15. júní:

  • Almennar fjöldatakmarkanir 300 manns. Börn fædd 2015 og síðar áfram undanþegin.
  • Nándarregla einn metri í stað tveggja.
  • Sitjandi viðburðir: Engin krafa um nándarmörk. Áfram grímuskylda og að hámarki 300 manns í hverju sóttvarnahólfi. Með sitjandi viðburðum er átt við leikhús, íþróttaviðburði, athafnir trúar- og lífsskoðunarfélaga, ráðstefnur og viðlíka.
  • Veitingastaðir: Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, frá kl. 23 til miðnættis. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 01.00.

Gildistími: Reglugerð sem felur í sér ofangreindar breytingar á samkomutakmörkunum innanlands mun gilda til og með þriðjudagsins 29. júní næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga