Fréttir | 22. júní 2021 - kl. 14:29
Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra

Húnaþing vestra auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra. Markmið sjóðsins er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar, styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu.

Áherslur áherslur sjóðsins lúta að verkefnum sem stuðlað geta að auknum umsvifum, betri afkomu og rekstri fyrirtækja og þróun og nýsköpun í atvinnulífi í Húnaþingi vestra.

Styrkir sem veittir eru úr sjóðnum eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir, ekki rekstrarstyrkir eða styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða greiða skuldir.

Hér er að sækja um á vef Húnaþings vestra og skulu umsóknir berast eigi síðar er 12. júlí næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga