Styrktaraðilar
Styrktaraðilar
Guðrún og Kristófer
Guðrún og Kristófer
Sigurbjörg deildarstjóri og Guðrún sjúkraliði ásamt styrktaraðilum og stjórn Hollvinasamtakanna.
Sigurbjörg deildarstjóri og Guðrún sjúkraliði ásamt styrktaraðilum og stjórn Hollvinasamtakanna.
Fréttir | 24. júní 2021 - kl. 09:24
Síðbúin afmælisgjöf frá Hollvinasamtökum HSB
Frá stjórn samtakanna

Síðastliðinn mánudag héldu Hollvinasamtök HSB síðbúinn afmælisfagnað í tilefni 15 ára afmælis samtakanna, en afmælið var þann 19. apríl í fyrra. Í því tilefni var efnt til söfnunar til kaupa á rafknúnum sturtustól á sjúkradeild A  og 75“ snjall sjónvarpstæki á 4. hæð.

Ákveðið var að bjóða þeim sem styrktu söfnunina í afmæliskaffi. Sigurbjörg deildarstjóri HSB tók við gjafabréfinu.

Guðrún Inga sjúkraliði sýndi gestum notagildi stólsins. Nýtist hann vel bæði skjólstæðingum og léttir undir með starfsfólki. Átti stjórnin og þessir frábæru hollvinir ánægjulega stund saman. Ljóst er að lítið gætum við gert fyrir Heilbrigðisstofnunina okkar, ef ekki væri fyrir stuðning velviljaðra einstaklinga og félaga.

Stjórnin

Mynd 1 Styrktaraðilar, f.v.:Sveinbjörn Sigurðsson, Anna Guðrún Vigfúsdóttir, Kristófer Sverrisson og Gísli Jóh. Grímsson á myndina vantar Jón Aðalstein Sæbjörnsson

Mynd 2  Guðrún Inga Benediktsdóttir sjúkraliði og Kristófer Sverrisson hollvinur

Mynd 3 Sigurbjörg deildarstjóri og Guðrún sjúkraliði ásamt styrktaraðilum og stjórn Hollvinasamtakanna. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga