Fréttir | 25. júní 2021 - kl. 11:14
Aflétting allra samkomutakmarkana 26. júní

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að frá og með 26. júní næstkomandi falli úr gildi allar takmarkanir á samkomum innanlands. Í þessu felst m.a. fullt afnám grímuskyldu, nándarreglu og fjöldatakmarkana. Ákvörðun um afléttingu allra samkomutakmarkana er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

„Í raun erum við að endurheimta á ný það samfélag sem okkur er eðlilegt að búa í og sem við höfum þráð, allt frá því að heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur voru virkjaðar vegna heimsfaraldurs fyrir rúmu ári, þann 16. mars 2020“ segir heilbrigðisráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Um 87% þeirra sem áformað er að bólusetja hafa nú fengið a.m.k. eina sprautu, um 60% eru fullbólusett gegn Covid-19 og nú ættu öll sem ekki var áður búið að bjóða bólusetningu að hafa fengið slíkt boð. Áætlanir stjórnvalda um framgang bólusetningar og afléttingu samkomutakmarkana hafa því gengið eftir að fullu, að því er segir í tilkynningunni.

„Takmarkanir innanlands vegna Covid-19 hafa verið breytilegar á tíma heimsfaraldursins eftir stöðunni hverju sinni. Nándarregla og fjöldatakmarkanir hafa verið viðvarandi allt tímabilið, grímuskylda í einhverri mynd hefur gilt um langa hríð. Takmarkanirnar hafa gert það að verkum að allri mögulegri starfsemi hefur verið þröngt sniðinn stakkur og á tímabilum legið alveg niðri. Menningarlíf, íþróttastarf, skólastarf, veitingarekstur, ferðaþjónusta og fjölmargt annað hefur markast af gildandi reglum um samkomutakmarkanir á hverjum tíma. Með ákvörðun heilbrigðisráðherra um afléttingu allra samkomutakmarkana verða reglur um samkomur ekki háðar öðrum takmörkunum en almennt gilda í samfélaginu og giltu áður en heimsfaraldurinn skall á.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga