Fréttir | 28. júní 2021 - kl. 19:30
Samsýningin Þórdís - fyrsti Húnvetningurinn

Í sumar verður önnur samsýning listamanna á Norðurlandi vestra í Listakoti Dóru í Vatnsdalshólum. Í fyrra var tekið fyrir þjóðsagan Stúlkan og Hrafninn sem er byggð á atburðum sem urðu þegar Skíðastaðaskriða féll 1545. Í ár verður tekið fyrir fæðing fyrsta innfædda Húnvetningsins sem hlaut nafnið Þórdís. Þrettán listamenn úr Húnavatnshreppi, Skagafirði, Reykjavík og Bandaríkjunum taka þátt í sýningunni. Listamennirnir nota allskonar tækni og málningu við listsköpun sína.

Þórdís fæddist sunnan við Vatndalshólana og er svæðið kennt við hana. Hún var dóttir Ingimundar gamla sem nam land í Vatnsdal og er saga þeirra rakin í Vatnsdælu. Í tilkynningu frá Listakoti Dóru segir að svo skemmtilega vilji til að einn af listamönnunum eigi afmæli 26.11 og það sé núna í ár sen 1126 ár séu síðan Þórdís fæddist. Þá er þess getið til gamans að það eru tvö pör af mæðgum í listamannahópnum.                                                                                                          

Vatnsdalshólar, þar sem sýningin fer fram, eru í tveggja kílómetra fjarlægð frá þjóðvegi eitt. Vatnsdalshólar er fyrsti bær inn í Vatndalinn að vestan verðu. Þar er rekin vinnustofa og gallerí. Hún er rekin af hjónunum Hólmfríði Dóru Sigurðardóttur og Aðalsteini Tryggvasyni.

Sýningin opnar 10. júlí og er  til 12. september. Á opnunardaginn verður boðið upp á kakó að hætti Steina og vöfflur. Fastur opnunartími er laugardaga til þriðjudaga klukkan 12.00-18.00. Aðra daga er hægt að hringja í síma 8642290 og athuga hvort einver sé heima eða koma við.

Þetta er þriðja árið sem vinnustofan er rekin í Vatnsdalshólum. Landslagsmálverk er aðalvinna listamannsins en hún handmálar á kerti og kort. Hringrásarkerfið er henni hugleikið og nýjasta varan er litlar verur úr texti sem er búið að ljúka hlutverki annarstaðar. Hún nýtir líka skargripi og fleira í þá áttina. Upplagt er að koma og njóta fallegra náttúru og listar. Hægt er að hafa samband líka í gegnum Facebook síðuna Listakot Dóru.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga