Mynd: vedur.is
Mynd: vedur.is
Fréttir | 29. júní 2021 - kl. 07:40
Gul veðurviðvörun í dag

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun á Ströndum og Norðurlandi vestra í dag frá klukkan 14 til miðnættis. Spáð er sunnan hvassviðri, 10-18 m/s. Búast má við snörpum vindhviðum við fjöll, um 30 m/s og getur verið varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni.

Sjá nánar á vef Veðurstofu Íslands.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga