Tilkynningar | 28. júní 2021 - kl. 21:52
Konur í golfi
Frá Golfklúbbnum ÓS

Atli Freyr Rafnsson verður með golfkennslu fyrir konur sem hafa áhuga á að prófa golfíþróttina. Námskeiðið er fjórar klukkustundir og kennt verður á fimmtudögum. Fyrsti tíminn verður 8. júlí klukkan 18:30. Einnig verður kennt 15., 22. og 29. júlí. Námskeiðið kostar kr. 10.000.

Skráning er á netfangið jgjon@mi.is eða í síma 864 4846, fyrir klukkan 16 mánudaginn 5. júlí.

Atli Rafn býður einnig upp á einkatíma í golfi, jafnt fyrir byrjendur og lengra komna.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga