Tilkynningar | 29. júní 2021 - kl. 22:20
Staða aðstoðarleikskólastjóra

Leikskólinn Barnabær á Blönduósi auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í 100% stöðu, frá og með 1.ágúst 2021.

 Í leikskólanum eru 65 börn og 5 deildir frá 8 mánaða aldri.

Einkunnarorð skólans er: Leikur. Gleði. Virðing

Unnið er eftir kenningum John Dewey, að læra í gegnum leikinn, einnig er unnið eftir læsisstefnan Færni til framtíðar sem var Þróunarverkefni grunn og leikskóla í Húnavatnssýslum.

Í haust verður farið af stað í þróunarverkefnið Lærdómssamfélagið þvert á skólastig í Austur Húnavatnssýslu.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans.
Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
Sinnir einnig þeim sér verkefnum sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara. 
Framhaldsnám sem nýtist í starfi æskilegt. 
Reynsla af starfi og stjórnun leikskóla. 
Hæfni í mannlegum samskiptum. 
Fagleg forysta, sýn og vilji til þróunar í leikskólastarfi. 
Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi. 
Góð tölvukunnátta. 
Gott vald á íslensku, kunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti

Umsóknarfresturinn er til og með 11. júlí 2021.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Helga Sigurðardóttir leikskólastjóri í símar 455 4740 /894 0051 eða á netfangið helga@blonduos.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag stjórnenda í leikskóla.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um rafrænt á heimasíðu skólans http://www.barnabaer.leikskolinn.is/ eða senda á netfangið helga@blonduos.is

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og leyfisbréf til kennslu.

Þeir sem ráðnir eru til starfa í Leikskólanum Barnabæ á Blönduósi þurfa að undirrita heimild til að afla upplýsinga úr sakaskrá.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga