Frá afmælismótinu. Mynd: hunathing.is
Frá afmælismótinu. Mynd: hunathing.is
Fréttir | 30. júní 2021 - kl. 07:49
USVH hélt upp á 90 ára afmæli sitt með fjölmennu frjálsíþróttamóti

Fjölmenni var saman komin í Kirkjuhvammi í fyrradag þegar Ungmennasamband Vestur-Húnvetninga fagnaði 90 ára afmæli sínu. Haldið var fjölmennt frjálsíþróttamót fyrir unga sem aldna, spilaður fótbolti og boðið var upp á veitingar.

Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra og þar þakkar byggðarráð sveitarfélagsins USVH óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins og óskar því velfarnaðar til framtíðar. Ákvað ráðið að styrkja USVH um 500 þúsund krónur til áhaldakaupa í tilefni tímamótanna. „Óhætt er að segja að öflugt íþrótta- og tómstundastarf er hverju samfélagi dýrmætt og gegnir USVH mikilvægu hlutverki í sveitarfélaginu,“ segir í bókun byggðarráðs.

„Í bókinni Húnaþing rekur sr. Gísli Kolbeins uppruna ungmennasambandsins, en þar segir: „U.S.V.H. er sprottið upp úr jarðvegi félagslífsins og rekur uppruna sinn til þeirrar félagsstarfsemi, sem löngum hefir verið rækt í héraðinu.“ Í lögum sambandsins, sem samþykkt voru á stofnfundinum, er tilgangi félagsins lýst á einfaldan hátt: „Tilgangur sambandsins er að finna að því að sameina krafta hinna einstöku félaga.“ Á stofnfundinum var samþykkt tillaga þar sem fundurinn taldi æskilegt að íþróttaiðkun verði tekin upp á sambandssvæðinu. Í þessum tillögum stofnfundarins kom í ljós hvert stefnan var tekin í félagslegu tilliti og hefur starfsemi sambandsins einkennst af íþróttamálum, samstarfi og samheldni. Segja má að sú stefna eigi við enn í dag, 90 árum seinna. Fyrstu stjórnarmenn U.S.V.H. voru Ingólfur Gunnlaugsson, Reynhólum, formaður, Guðmundur Björnsson, Núpsdalstungu, ritari og Aðalsteinn Teitsson, Víðidalstungu, gjaldkeri.“

Á vef Húnaþings vestra má sjá nokkrar myndir frá afmælismótinu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga