Skagastrandarhöfn
Skagastrandarhöfn
Fréttir | 01. júlí 2021 - kl. 10:25
Samtal um sameiningu Skagastrandar og Skagabyggðar

Sveitarstjórnir Sveitarfélagsins Skagastrandar og Skagabyggðar funduðu í vikunni til þess að kanna forsendur fyrir sameiningu sveitarfélaganna og áttu góðan fund, að því er fram kemur á vef Skagastrandar. Niðurstaða fundarins var að leggja óformlega könnun fyrir íbúa seinni part sumars, til þess að kanna hug þeirra til hugsanlegrar sameiningar, áður en ákvörðun verður tekin um hvort fara eigi í formlegar viðræður milli sveitarfélaganna.

Sveitarstjóra Skagastrandar og oddvita Skagabyggðar var falið að vinna málið áfram.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga