Vorið var seinna á ferðinni í ár í A-Hún.
Vorið var seinna á ferðinni í ár í A-Hún.
Fréttir | 01. júlí 2021 - kl. 10:44
Heyskapur seinna á ferðinni

Heyskapur er seinna á ferðinni í Austur-Húnavatnssýslu en í meðalári og sláttur varla byrjaður. Þetta kom fram í máli Önnur Margrétar Jónsdóttur, bónda á Sölvabakka, en hún var í viðtali hjá morgunútvarpi Rásar 2 í morgun. Hún sagðist ekki muna eftir jafn hvössu veðri og verið hafi undanfarið á þessum árstíma og að maí hafi verið ískaldur. En vorið hafi svo komið í öllu sínu veldi annan dag Hvítasunnur og varað í nokkra daga.

Hlusta má á viðtalið við Önnur hér.

Hún telur bændur verða seinni að heyja í ár en það komi ekki endilega niður á gæðum heysins. „Túnin eru bara róleg af stað þá þroskast nú grösin bara síðar. Ég hugsa að flestir doki bara við og sjái aðeins til með það.“ Anna Margrét sagði áramun í sprettunni. Snemmbúið vor sé þó algengara hin síðari ár.

„Það truflar kannski aðeins þetta mat að menn eru að reyna að bæta heygæðin og eru því að fara fyrr af stað að heyja, heldur en var fyrir svona tuttugu árum.“

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga