Hafdís Bjarnadóttir and Passepartout Duo (Nicoletta Favari & Christopher Salvito)
Hafdís Bjarnadóttir and Passepartout Duo (Nicoletta Favari & Christopher Salvito)
Fréttir | 02. júlí 2021 - kl. 12:56
Prjónatónar í Heimilisiðnaðarsafninu

Hafdís Bjarnadóttir og Passepartout Duo munu halda prjónatónleika í Heimilisiðnaðarsafninu sunnudaginn 4. júlí klukkan 15:00. Þau bjóða gestum að hafa með sér prjónana eða aðra handavinnu til að dunda við á meðan tónleikunum stendur.

Tónlistarfólkið mun ferðast innanlands í júlí mánuði og bjóða upp á sérstaka tónlist, sauða- og prjónatóna, sem nokkurs konar nútímaóð til kvöldvöku gamla tímans.

Aðgangseyrir safnsins gildir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga