Fréttir | 05. júlí 2021 - kl. 11:42
Dagskrá Húnavöku 2021

Dagskrá Húnavöku er klár en hátíðin verður haldin á Blönduósi í 18. sinn dagana 15.-18. júlí. Á fyrsta degi hátíðarinnar ætla Blönduósingar í þéttbýli og dreifbýli að skreyta hús sín hátt og lágt fyrir hátíðina. Lagt er til að bærinn verði fylltur af skemmtilegum og frumlegum fígúrum. Verðlaun verða veitt fyrir best skreytta húsið, frumlegustu og flottustu fígúruna og fyrir götuna með flestar fígúrur. Að kvöldi fimmtudagsins verður svo Bjórbingó í Félagsheimilinu.

Föstudaginn 16. júlí fara fram útitónleikar með Eyjólfi Kristjánssyni og eru þeir haldnir við Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Leikhópurinn Lotta verður á Þríhyrnunni og tónleikar verða á skólalóð Blönduskóla um kvöldið. Dagurinn endar á stórdansleik í Félagsheimilinu.

Hápunktur hátíðarinnar verður laugardaginn 17. júlí en þá fer fram golfmót á Vatnahverfisvelli, opið mót í ólympísku skeet á skotsvæði Markviss og árlegt Blönduhlaup USAH. Boðið verður upp á gönguferð um Hrútey, útsýnisflug, orgeltónleika í Blönduóskirkju, sundlaugarpartý, Zumba partý og margt fleira. Fjör verður við Félagsheimilið frá klukkan 14-17 með margvíslegri afþreyingu fyrir alla. Dagurinn endar svo á Kótelettukvöldi, brekkusöng, varðeldi og stórdansleik.

Sunnudaginn 18. júlí verður sápurennibraut í brekkunni fyrir neðan kirkjuna, gönguferð fjölskyldunnar, Stofutónleikar í Heimilisiðnaðarsafninu, Jóga með Svövu í Kvenfélagsgarðinum og útgáfutónleikar Halla Guðmunds, svo sitthvað sé nefnt um dagskrá Húnavöku 2021.

Nánar um dagskrá Húnavöku 2021 má sjá á Facebook síðu hennar og einnig er hún hér á meðfylgjandi myndum.

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga