Sigurvegarar mótsins. Mynd: FB/Gkl.Ós
Sigurvegarar mótsins. Mynd: FB/Gkl.Ós
Fréttir | 05. júlí 2021 - kl. 11:53
Meistaramót Golfklúbbsins Óss

Meistaramót Golfklúbbsins Óss á Blönduósi var haldið dagana 2. og 3. júlí. Keppt var í þremur flokkum, meistaraflokki karla og kvenna og í fyrsta flokki karla. Birna Sigfúsdóttir sigraði í meistaraflokki kvenna og Jón Jóhannsson í meistaraflokki karla. Grímur Rúnar Lárusson sigraði í 1. flokki karla.

Úrslit urðu þessi:

Meistaraflokkur karla.
1. sæti  Jón Jóhannsson.
2. sæti  Eyþór Franzson Wechner.
3. sæti  Valgeir M Valgeirsson.

Meistaraflokkur kvenna.
1. sæti  Birna Sigfúsdóttir.
2. sæti  Greta Björg Lárusdóttir

1. flokkur karla.
1. sæti  Grímur Rúnar Lárusson.
2. sæti  Marteinn Reimarsson.
3. sæti  Hafsteinn Pétursson.
4. sæti  Ágúst Þór Bragason.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga